Útivist

Möguleikar til útivistar og afþreyingar í  Mosfellsbæ eru margvíslegir, þar sem eitthvað er við allra hæfi.

Nálægðin við ósnortna náttúru og fallega staði er sérstaða bæjarins og er það m.a. ástæða þess að margir hafa valið að búa þar,  fjarri skarkala borgarlífsins.

Auknum áhuga á að stunda útivist og hverskyns íþróttir hefur verið svarað með markvissri uppbyggingu útivistarsvæða fyrir íbúa bæjarins, gesti þeirra og ferðamenn.

Með því að smella á hlekk hér fyrir neðan má skoða loftmyndir af Mosfellsbæ.

Mosfellsbær úr lofti séður

Svæðið umhverfis Íþróttamiðstöðina að Varmá er eitt glæsilegasta útivistarsvæði landsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta möguleika til íþróttaiðkana, jafnt fyrir börn sem fullorðna.