Fuglaskoðun
Fuglaskoðunarhúsið í Leiruvogi var vígt þann 29. apríl 2009. Húsið
er staðsett við Langatanga neðan við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Aðgengi
að húsinu er gott með göngustígum sem liggja meðfram ströndinni eða frá
golfskálanum. Sjá staðsetningu á korti/leið.
Fuglahúsið mun nýtast almenningi og skólum í Mosfellsbæ vel við
fuglaskoðun við Leiruvoginn, enda er Leiruvogurinn einstakur hvað
varðar fuglalíf allan ársins kring. Auk þess er fuglaáhugamönnum
hvaðan æva að heimilt að nýta sér þá góðu aðstöðu sem þarna er í boði.
Húsið er vel staðsett nálægt leirunni þar sem fjöldi vaðfugla heldur
til, ásamt því að veita góða yfirsýn yfir Langatanga sem margar
fuglategundir nýta sér sem hvíldarstað. Inni í húsinu er að finna
greinargott upplýsingaskilti um þá fugla sem finna má á leirunni ásamt
gestabók sem gestir eru hvattir til að rita nafn sitt í.
Aðstaða fyrir fatlaða er góð og gert ráð fyrir að fatlaðir geti
athafnað sig sjálfir í húsinu. Lyklar að fuglaskoðunarhúsi fást
afhentir í Íþróttamiðstöðinni Lágafelli, Lækjarhlíð 1a, virka daga frá
kl. 6:30 til 20:30 og um helgar frá kl. 8:00 til 19:00. Auk þess eiga
sérlegir fuglaáhugamenn eða félög þess kost að fá lykil til umráða til
varðveislu. Nánari upplýsingar má fá í þjónustuveri Mosfellsbæjar í
síma 525 6700.
Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ, segir
fuglaskoðunarhúsið mikilvæga aðstöðu fyrir fuglaáhugafólk því
Leiruvogur er einstakur hvað varðar fuglalíf allan ársins hring.
“Mosfellsbær er útivistarbær og er nálægðin við náttúruna hér í
Mosfellsbæ einstök. Fuglaskoðunarhúsið bætir þjónustu við þann hóp
fólks sem nýtur þess að fylgjast með fuglum í sínu náttúrulega umhverfi
og undirstrikar jafnframt mikilvægi fuglalífs í Leiruvogi,” segir Karl.