Skipulag og umhverfi
Sveitarfélagið Mosfellsbær er tæpir 20.000 hektarar (ha) að flatarmáli. Þar af eru rúmlega 3.000 ha undir 100 m hæð yfir sjávarmáli. Lögsögumörk við Kópavog og Seltjarnarnes syðst í sveitarfélaginu beggja vegna þjóðvegar við Sandskeið eru óviss og er skipulagi frestað á því svæði í gildandi aðalskipulagi.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er núverandi þéttbýli um 370 ha og rúmlega 800 ha teljast vera landbúnaðarsvæði.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í sveitarfélaginu síðustu árin og hefur bærinn stækkað umtalsvert. Á árinu 2008 eru þrjú íbúðarhverfi í uppbyggingu, Krikahverfi, Helgafellshverfi og Leirvogstunga. Einnig stendur yfir uppbygging á mörkum Höfðahverfis og Blikastaðalands, við Hulduhóla, Hamrafell og víðar, þó í minna mæli sé. Ljóst er því að þéttbýli bæjarins hefur stækkað verulega, en skilgreining þéttbýlismarka er eitt af viðfangsefnum endurskoðunar á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem nú stendur yfir.