Menning og mannlíf
Í Mosfellsbæ er blómstrandi menningarlíf. Hér eru starfandi fjöldi listamanna sem setja mikinn svip á mannlífið, hvort sem eru tónlistarmenn, rithöfundar, myndlistarmenn, leikarar, þekktir eða óþekktir.
Mosfellsbær hefur löngum státað sig af þeirri fjölbreyttu menningarflóru sem gæðir bæinn lífi. Hér hefur menningin skipað stóran sess um aldabil og hefur bærinn, eða Mosfellssveit eins og hún áður hét, getið af sér marga af þekktustu og dáðustu listamenn þjóðarinnar.
Nóbelsskáldið okkar, Halldór Laxness, Mosfellssveit og -bæ órofa böndum. Hann ólst upp að Laxnesi í Mosfellsdal, kenndi sig alla tíð við bernskustöðvar sínar og settist að í dalnum sem fulltíða maður. Hann sá bernskuár sín í dalnum í hillingum og í nokkrum bóka sinna sækir hann efniviðinn í Mosfellssveit, einkum í Innansveitarkroniku og endurminningabókinni Í túninu heima.
Mosfellingar hafa fengið að láni frá Laxnesi heitið á endurminningabók hans, Í túninu heima, sem er yfirskriftin á menningarhátíð Mosfellsbæjar sem haldin er í ágúst ár hvert. Bæjarhátíðin er hápunktur menningarlífs Mosfellsbæjar og jafnframt vitnisburður um þá miklu grósku sem hér er við lýði í menningarstarfsemi hvers konar.
Undir þessum flipa, Menning og mannlíf, má finna upplýsingar um allt það frábæra menningarstarf sem er í gangi í Mosfellsbæ, hvort sem er á vegum Mosfellsbæjar eða einkaaðila. Hér eru til að mynda upplýsingar um starfandi listamenn í sveitarfélaginu, gallerí, söfn, bæjarhátíðina og margt fleira.