Lifa og læra
Mosfellsbær hefur lagt áherslu á að aðlaga þjónustu og starfsemi stofnana að daglegu lífi íbúanna og með þeim hætti verða fjölskyldu- og heilsuvænn bær, en ekki síst barnvænn bær.
Mosfellsbær hefur mótað stefnu sem vísar leið til þess að gera skóla sveitarfélagsins og uppeldisstofnanir að styrkum stoðum samfélagsins, þannig að börn njóti góðrar menntunar, mótist sem ánægðir, ábyrgir og virkir þjóðfélagsþegnar og fái notið bernsku sinnar.
Með heildrænum hætti er lögð áhersla á samfellu, bæði daglegri en einnig frá ári til árs og milli skólastiga. Mosfellsbær hefur verið í fararbroddi á Íslandi um þróun þjónustu við barnafjölskyldur, með því að fella saman dagleg verkefni barn í skóla og frístund og tengja saman skólastig. Margar hugmyndir hafa blómstrað – leikskóladeildir við grunnskóla, samfelldur skóli fyrir börn frá eins til níu ára, svo koma megi sem best til móts við börn og barnafjölskyldur og þarfir þeirra í nútímasamfélagi.
Undir þessum flipa, Lifa og læra, má finna upplýsingar um alla þá þjónustu sem íbúum er veitt á sviði skólamála og félagsmála. Einnig eru hér upplýsingar um frístundastarf og Bókasafn Mosfellsbæjar.